Eitt af því besta við maí, þegar prófin eru búin en sumarið ekki alveg komið og maður á ennþá alveg fullkomlega skilið að slaka bara á og gera ekki neitt er lestur góðra bóka.
Ég er ekki búin að gera margt annað en að lesa bækur, dotta og tjilla síðustu viku.
Þetta skrifaði ég þegar ég kom heim af djamminu á fimmtudaginn:
Það er eitthvað alveg ótrúlegt við það að það sé enn bjart, eða orðið bjart á ný klukkan fjögur að morgni. Að leigubílstjórinn bjóði góðan daginn í staðinn fyrir góða kvöldið. Að fjallahringurinn allt umhverfis borgina sjáist, og maður þurfi að draga andann aðeins dýpra vegna fegurðinnar sem við manni blasir úr hverri átt.

Það er eitthvað magnað við það að þegar svona er á statt, viti maður að allt verður gott. Ég veit ekki hvernig fólk annarsstaðar en á norðurhveli jarðar fer að, eða við hvað það miðar. Kannski að geta farið út að næturlagi í kjól einum saman, án sokkabuxna. Ó þvílíkt líf!
Gamla rómantíska greinilega alveg í gírnum snemma morguns.
Föstudagsdjammið var skemmtilegasta djamm síðari tíma. Iðnó, 3 fyrir 1, Ellefan, Linda og Ásdís Arna.
Þetta verða góðar vikur framundan.

|