Að hitta bestu konurnar á Snaps í gær var yndislegt. Góður matur, góðar vinkonur og samræður á nákvæmlega sama plani og ég sjálf er. Fátt er mikilvægara en það.
Ég er glöð að við Dóra erum sammála um að það sé mikilvægt að upplifa sig alltaf eins og á toppnum á tilverunni hvern einasta dag, á sínum eigin forsendum.
Þrátt fyrir að vera á toppnum þá dansa ég samt alltaf tangó þegar ég að vera að dansa vals. Það er allt í lagi á meðan maður heldur takti, held ég.
Og mundu svo Brynhildur;
ekki hætta að vera einlæg og ekki hætta að trúa á eitthvað - sjálfa þig, málstaðinn, ástina eða hvað sem er.
Fallegt hjartalag kemur manni langt. Eða eitthvert allavegna.
13.3.12
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á þriðjudagur, mars 13, 2012
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|