Janúarmánuður flaug hjá, þetta er svo ótrúlega skemmtilegur tími þegar maður er í kosningabaráttu. Það jafnast ekkert á við það að eyða svona miklum tíma með svona góðu fólki og kynnast svona mikið af fólki. Allt frá því að ég hélt upp á afmælið mitt (sem var skemmtilegasta partí sem ég hef haldið, og mögulega skemmtilegasta partí sem ég hef farið í) hefur Röskvan tekið öll völd. Ég vildi að hún hefði líka tekið völd hjá fleirum en mér.
Lífið var að hefjast á ný í dag. Ég mætti í tíma og fylgdist með, hugsaði ekki um neina aðra hluti og fór svo í langan hádegismat, settist og las, fór í kaffi, las meira og tók strætó heim í rólegheitunum. Hversdagslífið tók semsagt við mér eins og ekkert hefði í skorist. Mikið er það gott, en mikið er lögfræði leiðinleg.
Ég er að taka mjög góðan pól á allt þessa dagana (nema mögulega laganámið, ojæja). Þegar einar dyr lokast opnast aðrar. Það er mjög gott viðhorf. Ég þarf að læra fáránlega mikið næstu vikur til þess að geta haldið einum dyr opnum, ég vil helst að þær verði galopnar næsta árið og Þýskaland taki á mér opnum örmum. Svo er farið að birta og það getur ekki gert manni neitt nema gott.
Það verður ágætt að djamma ekki 5 daga í viku næstu vikurnar, læt kannski 1-2 duga. Þessi síðasta vika fer í sögubækur mínar sem viðburðamesta, skrýtnasta en mögulega líka ein af bestu vikum lífs míns. Það þarf að halda gleðinni við, það þarf að vera dramatískur, það þarf að senda fyndin sms, það þarf að syngja mikið.
Ég er að byrja í Crossfit eftir 40 mín. Ég er svo spennt/stressuð að ég dey.
ps. ég er farin að hugsa of mikið um hvað ég skrifa og hvernig ég læt hluti frá mér. Það þykir mér slæm þróun. Stundum þarf maður ekkert að segja merkilega hluti og fyrir hvern er ég að blogga nema sjálfa mig?
(mér sjálfri fannst þetta s.s. frekar leiðinleg blogg, en ákvað að láta bara flakka samt. Vonandi að lesendur mínir verði ekki fyrir vonbrigðum.)
6.2.12
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á mánudagur, febrúar 06, 2012
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|